07.11.1984
Efri deild: 10. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (576)

138. mál, löggiltir endurskoðendur

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég flyt hér á þskj. 143 frv. til l. um breytingu á lögum nr. 67/1976, um löggilta endurskoðendur. Með frv, þessu er lagt til að ákvæði laga, er takmarka heimild til að endurtaka verkleg próf til löggildingar í endurskoðun, verði rýmkuð. En skv. gildandi ákvæðum er engum heimilt að endurtaka próf þessi nema einu sinni. Reynslan hefur sýnt að erfitt er að standast þessi

próf. Komið hefur fyrir að prófmenn hafa fallið tvívegis og þar með endanlega fyrirgert rétti sínum til þess að þreyta prófið. Skv. núgildandi reglum þurfa menn að hafa lokið prófi við viðskiptadeild Háskóla Íslands með endurskoðun sem kjörsvið auk þess að hafa starfað í þrjú ár að endurskoðun undir stjórn löggilts endurskoðanda til þess að mega þreyta prófið. Það er því viðurhlutamikið að koma í veg fyrir að mönnum gefist tækifæri til að sanna þekkingu sína með endurtekningu prófs, þar sem þeir hafa þá þegar 10 ár að baki í námi til að öðlast réttindi sem löggiltir endurskoðendur.

Þá er einnig á það að benda að skilyrði til endurtöku prófa í Háskóla Íslands eru rýmri en til umræddrar endurtöku verklegs prófs í endurskoðun skv. núgildandi ákvæðum. Ég tel þessa breytingu sjálfsagða réttlætiskröfu og sé því ekki ástæðu til að fjölyrða um hana.

Um leið og ég legg til að málinu verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr. legg ég áherslu á að afgreiðslu þess verði hraðað svo sem nokkur kostur er, þar eð löggildingarpróf eru fyrirhuguð í des. n.k.