12.06.1985
Efri deild: 96. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6371 í B-deild Alþingistíðinda. (5766)

5. mál, útvarpslög

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Við Alþb.-menn erum andvígir því að styrkur og áhrif einkasjónvarpsstöðva ákvarðist af því hversu auðveldan og greiðan aðgang þær eiga að auglýsingum og þess vegna erum við andvígir því að einkastöðvarnar megi selja auglýsingar. En með hliðsjón af því að þessi till. Alþfl. gengur þó þrátt fyrir allt skemur en frv. gerir í núverandi búningi segi ég já.