12.06.1985
Efri deild: 97. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6374 í B-deild Alþingistíðinda. (5773)

Um þingsköp

Forseti (Stefán Benediktsson):

Ég vil upplýsa þdm. um að frá þingflokksformanni Framsfl. er komin fram sú krafa að 3. umr. um útvarpslög fari ekki fram fyrr en á morgun. Ég verð því að álykta sem svo að sú hugmynd að leyfa þessa umr. núna njóti ekki stuðnings og verði þar með ekki borin undir deildina.