12.06.1985
Neðri deild: 93. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6377 í B-deild Alþingistíðinda. (5792)
456. mál, Byggðastofnun
Stefán Guðmundsson:
Herra forseti. Ég tel óeðlilegt að binda það í lög hvar Byggðastofnun skuli vera staðsett. Miðað við að frv. það um Byggðastofnun sem hér er til umræðu verði samþykkt tel ég eðlilegt að stjórn hinnar nýju Byggðastofnunar taki um það ákvörðun í samráði við ríkisstj. hvar hún skuli staðsett. Því segi ég nei við till. á þskj. 1053.