12.06.1985
Neðri deild: 93. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6378 í B-deild Alþingistíðinda. (5797)

284. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Allshn. hefur komið saman til fundar og kynnt sér og rætt þá brtt. sem komin er til Nd. frá Ed. og birt er á þskj. 1225. Þar er um það að ræða að á ferðinni er allsíðbúin umsókn um ríkisborgararétt. Ed. hefur þegar afgreitt málið á jákvæðan hátt. Niðurstaða allshn. Nd. er á sömu lund. Nefndin mælir einróma með því að þessi umsókn verði samþykkt hér í Nd. og bætist við frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar sem prentað er á þskj. 1229.