13.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6431 í B-deild Alþingistíðinda. (5809)
Varamenn taka þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Svohljóðandi bréf hefur borist:
„Reykjavík, 11. júní 1985.
Jón Kristjánsson, 4. þm. Austurl., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Guðrún Tryggvadóttir meinatæknir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Stefán Benediktsson,
forseti Ed.“
Guðrún Tryggvadóttir hefur áður setið á þessu þingi og býð ég hana velkomna til áframhaldandi starfa á Alþingi.
Þá hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 13. júní 1985.
Guðmundur Bjarnason, 6. þm. Norðurl. e., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, Níels Árni Lund æskulýðsfulltrúi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Níels Árni Lund hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa á ný.