13.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6435 í B-deild Alþingistíðinda. (5817)

474. mál, umsvif erlendra sendiráða

Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Ég ætla mér ekki að ræða þessa till. efnislega, um hana var eins og fram hefur komið samstaða í utanrmn., en mér þykir hlýða, þar sem hér hafa þakkarávörp verið flutt, að þakka af minni hálfu samstarf við utanrmn. og lýsa ánægju minni yfir starfi nefndarinnar.