13.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6435 í B-deild Alþingistíðinda. (5818)

474. mál, umsvif erlendra sendiráða

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er ekki till. um að þessari þáltill. sé vísað til nefndar. Það er ekki óeðlilegt vegna þess að ef svo væri hefði till. verið vísað til þeirrar nefndar sem ber till. fram. Þess vegna rekur ekki nauður til að fresta þessari umr. og okkur er ekkert að vanbúnaði að ganga strax til atkv. um till.