13.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6447 í B-deild Alþingistíðinda. (5843)
222. mál, stofnun og rekstur smáfyrirtækja
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykv. var að tala áðan um kjaftæði. Ég veit ekki hvað er meira kjaftæði en það sem kom fram hjá síðasta ræðumanni. Hvar liggur það fyrir að búið sé að rannsaka að það sé engin mengunarhætta af álveri við Eyjafjörð? Það er alrangt, mistúlkun manna sem hugsa um ekkert annað í atvinnurekstri en stóriðju.
Ég ætla ekki að eyða tímanum, forseti, í umr. af þessu tagi nú, en ég er tilbúinn að gera það hvenær sem er ef tilefni gefst til.