18.06.1985
Sameinað þing: 98. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6708 í B-deild Alþingistíðinda. (6011)

Skýrsla fjmrh. um heildarendurskoðun lífeyrismála

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Mér finnst hv. síðasti ræðumaður setja mig upp að vegg með því að óska eftir yfirlýsingum í þessu stóra máli sem um er rætt. Ég er ekki tilbúinn að gefa neinar yfirlýsingar sem ég treysti mér kannske illa til að standa við á þessu stigi málsins. Þegar ég hef kynnt mér málið betur skal ég gefa þær yfirlýsingar sem ég treysti mér til að gefa.