18.06.1985
Neðri deild: 102. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6794 í B-deild Alþingistíðinda. (6072)
423. mál, viðskiptabankar
Frsm. 1. minni hl. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég vil við 3. umr. um frv. um viðskiptabanka lýsa ábyrgð á hendur ríkisstj. fyrir vinnubrögðin í þessum málum, bæði varðandi frv. um viðskiptabanka og frv. um sparisjóði. Ég mótmæli þessum vinnubrögðum mjög harðlega þar sem meiri hl. beitir sér fyrir því að knýja þessi mál í gegn á síðustu dögum þingsins þegar mörg önnur mál liggja fyrir og ljóst er að þessi mál fá ekki nægilega vandaða meðferð.
Í fyrsta lagi bendi ég á að hér er um að ræða einhverja afdrifaríkustu löggjöf sem þetta þing hefur fjallað um. Það sem einkum kemur þar til er að hér er verið að taka ákvörðun um algert vaxtafrelsi peningastofnana. Bæði í frv. um viðskiptabanka og frv. um sparisjóði er gert ráð fyrir algeru vaxtafrelsi. Meiri hl. Alþingis er að renna niður frjálshyggjukreddunum í heilu lagi.
Í öðru lagi bendi ég á að samkvæmt þessum frv. er gert ráð fyrir algeru frelsi, eins og það er kallað, til þess að stofna útibú.
Og í þriðja lagi er gert ráð fyrir því að hver sem er geti stofnað banka, að uppfylltum ákveðnum lagaskilyrðum, án þess að það mál komi til Alþingis.
Ég tel að hér sé verið að taka ákvörðun um mjög afdrifaríka þætti í okkar efnahagsmálastarfsemi og ég tel fulla ástæðu til að mótmæla þeim vinnubrögðum sem hér eru viðhöfð við að knýja þetta fram. Ég mótmæli því sérstaklega einnig, herra forseti, að frv. til laga um Seðlabanka Íslands hefur ekki séð dagsins ljós né heldur frv. um peningamálakerfið almennt. Í ljósi þessa mun ég fyrir mitt leyti greiða atkv. gegn frv. um viðskiptabanka.