18.06.1985
Neðri deild: 102. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6796 í B-deild Alþingistíðinda. (6078)

423. mál, viðskiptabankar

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það er skoðun mín að ákvörðun stjórnarliða á síðasta hausti um vaxtafrelsi sé misheppnaðasta og vitlausasta tímamótaákvörðun í efnahagsmálum þessarar þjóðar um langt skeið. Hér er haldið áfram lengra á sömu braut, auk annarra óæskilegra atriða sem í þessu frv. eru. Ég segi nei.