18.06.1985
Neðri deild: 102. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6797 í B-deild Alþingistíðinda. (6087)

Um þingsköp

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég sé nú ekki betur en að hér sé tiltölulega vel mætt, a. m. k. miðað við stund sólarhringsins. Oft eru haldnar hér ræður yfir færri sálum í hv. Nd. heldur en nú eru hér viðstaddar. Ég vil benda á það, sé mönnum það ekki ljóst, að hér er á ferðinni stjfrv. og það er stutt af fulltrúum stjórnarandstöðunnar. Ég legg til að við ljúkum umr. um þetta mál og sé reyndar ekkert því til fyrirstöðu að við gerum svo.