19.06.1985
Neðri deild: 103. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6816 í B-deild Alþingistíðinda. (6117)

Um þingsköp

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Menntmrh. er ekki viðlátinn, en ég hafði hugsað mér að hafa samband við hann og vildi óska eftir því að frv. um grunnskóla og eins frv. um lögverndun kennaraheitis komi ekki svo á dagskrá að hæstv. menntmrh. sé ekki um það kunnugt.