12.11.1984
Sameinað þing: 18. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 937 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Forseta hefur borist svohljóðandi bréf:

„Alþingi, 8. nóv. 1984. Karl Steinar Guðnason, 6. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Magnús H. Magnússon, Vestmannaeyjum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed.

Magnús H. Magnússon hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili. Býð ég hann velkominn til starfa.

Þá hefur forseta borist svohljóðandi bréf:

„Alþingi, 9. nóv. 1984.

Páll Pétursson, 2. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, Sverrir Sveinsson veitustjóri, Siglufirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“ Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Sverrir Sveinsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili. Býð ég hann velkominn til starfa.

Forseta hefur borist svohljóðandi bréf:

„Alþingi, 8. nóv. 1984.

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, 11. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Samtaka um kvennalista í Reykjavík, Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed.

Bréfi þessu fylgir kjörbréf Kristínar Ástgeirsdóttur. Það þarf athugunar við og ég fer þess á leit að hæstv. kjörbréfanefnd taki kjörbréf þetta til meðferðar. Á meðan verður fundinum frestað í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]