20.06.1985
Sameinað þing: 100. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6988 í B-deild Alþingistíðinda. (6356)
156. mál, nýting ríkissjóðs á hluta af Seðlabankabyggingu
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Allshn. hefur nú afgreitt þetta mál og er það komið í framhaldsumræðu. Eins og fram kemur í nál. hafa nokkrir nm. verið fjarverandi við afgreiðslu málsins. Það hefur ekki komið fram í umr. hver viðhorf þessara hv. þm. eru til þingmálsins. Það er oft gert í nál. að taka fram að þm. komi boðum til meðnm. sinna um viðhorf til mála. Ég vil halda því fram að afgreiðsla þessarar till. af hálfu allshn. sé ekki nægjanlega vel ígrunduð, einfaldlega vegna þess að um nýtingu þeirra húsakynna, sem hér um ræðir, hefur verið fjallað allmikið á vegum þeirrar stofnunar sjálfrar, þ. e. Seðlabankans, og eftir því sem ég best veit hafa staðið yfir viðræður við ráðh., í fyrsta lagi viðskrh., í öðru lagi forsrh. og í þriðja lagi fjmrh. um nýtingu þess hluta skrifstofuhúsnæðisins fyrirhugaða í nýju Seðlabankabyggingunni sem ekki er þörf fyrir vegna starfsemi Seðlabankans.
Ég tel óhjákvæmilegt að hv. þm. fái eitthvað að heyra um þessar samningaviðræður, sem ég nefndi og átt hafa sér stað milli forsvarsaðila Seðlabankans og viðkomandi ráðh., áður en þingheimur afgreiðir þessa till. Í sambandi við málsmeðferðina er auðvitað harla einkennilegt að hv. nm. í allshn. skuli ekki hafa gert svo lítið að kynna sér starfsaðstöðu í núverandi húsakynnum Seðlabankans, ekki gert svo lítið að kynna sér með hvaða hætti ný Seðlabankabygging mun verða notuð skv. því sem fyrirhugað er. Ég er ekki með þessu að segja að allshn. viðhafi óvönduð vinnubrögð í sjálfu sér. Ég tel þó að þegar slík mál eru á ferðinni, þá eigi ekki síður að vanda til þeirra en annarra.
Herra forseti. Mér þætti vænt um ef þeir ráðherrar sem ég nefndi greindu frá, að svo miklu leyti sem þeim sýnist að sjálfsögðu, þeim samningaviðræðum sem ég gat um, um nýtingu þess hluta Seðlabankahússins sem ekki er fyrirhugað að nota fyrir starfsemi Seðlabankans sjálfs.