20.06.1985
Sameinað þing: 100. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6990 í B-deild Alþingistíðinda. (6365)

156. mál, nýting ríkissjóðs á hluta af Seðlabankabyggingu

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Það hafa farið fram viðræður á milli viðskrh. og bankastjóra Seðlabankans um nýtingu þessa húss yfir Stjórnarráð Íslands. Það er svipað og það sem þessi till. gerir ráð fyrir að gert verði, þannig að mér sýnist samþykkt hennar ekki gera neitt annað en staðfesta það sem unnið hefur verið að og verður að sjálfsögðu gerð grein fyrir þegar upp verður staðið.