20.06.1985
Sameinað þing: 100. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6992 í B-deild Alþingistíðinda. (6371)

156. mál, nýting ríkissjóðs á hluta af Seðlabankabyggingu

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Til þess að fullnægt verði nú öllu réttlæti skv. sáttmálanum frá í morgun, þá þarf að taka tvær þáltill. enn fyrir. Það er enginn ágreiningur um þær. Mér er tjáð að það þurfi ekki nema eina setningu til að mæla fyrir þessum nál. Í trausti þess verður nú reynt að ljúka þáltill. með því að taka þessi mál fyrir.