20.06.1985
Sameinað þing: 100. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6993 í B-deild Alþingistíðinda. (6377)
Skýrsla forsrh. um Framkvæmdastofnun ríkisins
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Í samræmi við lög um Framkvæmdastofnun ríkisins hefur skýrslu stofnunarinnar verið dreift til þm. og hún reyndar legið á borði þm. í allmargar vikur. Þm. hafa haft gott tóm til að kynna sér skýrsluna og því ekki ástæða fyrir mig að hafa um hana langa ræðu. Reyndar hefur þessi skýrsla verið umræðuefni í ítarlegum ræðum hv. þm. í sambandi við önnur mál.
Skýrslan er með hefðbundnum hætti. Þar er gerð grein fyrir starfsemi áætlanadeildar, byggðadeildar og lánadeildar, sem eru þrjár deildir Framkvæmdastofnunar ríkisins. Þar er einnig gerð grein fyrir fjármögnun og lánveitingum fjárfestingarlánasjóða og ég veit að hv. þm. hafa fundið þar mikinn fróðleik. Sömuleiðis er gerð grein fyrir ársreikningum 1984, birtar í skýrslunni ítarlegar töflur um þróun á ýmsum sviðum þjóðmála og atvinnuvega og loks er í skýrslunni eins og fyrr skrá yfir öll lán sem Byggðasjóður hefur veitt á árinu 1984. Reyndar sýnist mér það vera nokkuð til fyrirmyndar að birta slíka skrá.
Auk þess er í skýrslunni, sem ekki hefur verið áður, inngangur saminn af formanni stjórnarinnar og kemur þar fram í stuttu máli yfirlit yfir starfsemina. M. a. kemur þar fram að heildarútlán Framkvæmdasjóðs námu á árinu 1 milljarði 977 millj. 624 þús. kr. auk styrkja sem voru 850 þús. kr. Af þessu fé fékk Byggðasjóður 247 millj. kr. Alls námu samþykkt lán og styrkir Byggðasjóðs 340 millj. kr. á árinu 1984. Hreinar tekjur Byggðasjóðs á árinu 1984 voru 127 millj. 353 þús. Þar af framlag úr ríkissjóði 78 millj. 400 þús kr.
Herra forseti. Eins og forseti sagði, þá mætti ræða þessa skýrslu lengi því að í henni er mjög mikill fróðleikur. En upp úr skýrslunni var ítarlega lesið hér á fundi, m. a. nokkurn veginn það sem viðkemur áætlanadeild og fjölmargt fleira. Sé ég því ekki ástæðu til að fjölyrða um þessa skýrslu en læt þessa framsögu nægja.