20.06.1985
Neðri deild: 106. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7028 í B-deild Alþingistíðinda. (6424)
398. mál, grunnskólar
Frsm. meiri hl. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég hef ekki fengið þessa brtt. í hendur. Ég held ég verði að biðja um að fá örlítinn frest á þessari umr. þar sem þessi brtt. er nýtilkomin og hafði ekki verið útbýtt þegar fundi var frestað í dag. Ég vildi gjarnan fá að kynna mér það í grunnskólalögum um hvað þetta mál fjallar. (Forseti: Þessari brtt. var lýst áðan og gefin afbrigði fyrir því að hún mætti koma fyrir.) Það er komið í ljós að þm. eru önnum kafnir við að flytja frv. sem eru allt önnur frv. en þeir ætla að flytja og hæstv. forseti segir að það skipti svo sem ekki máli því að hægt sé að endurprenta frv. og setja svo „Prentað upp“ og heiti nýtt þingmál. Svo kemur í ljós að samþykkt er við 2. umr. um þetta mál brtt. frá hv. þm. sem er allilla hugsuð. Það er kannske ókurteisi að þm. fái að kynna sér þau lög sem málið snertir. Ég óska eftir að það verði gert hlé á umr. og mér gefist tími til að ná í lagasafn og sjá hvernig þetta fellur saman við heildargrunnskólalögin úr því að svo illa tókst til sem raun ber vitni eftir atkvgr. í gær. (Forseti: Það verður fúslega veitt að hv. þm. fái að gera hlé á máli sínu.)