20.06.1985
Neðri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7029 í B-deild Alþingistíðinda. (6430)

236. mál, stálvölsunarverksmiðja

Frsm. (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs á láni vegna byggingar stálvölsunarverksmiðju. Nál. er á þskj. 1401.

Þetta mál hefur legið fyrir nefndinni og hún hefur samþykkt að mæla með að frv. verði samþykkt hér í Nd. eins og það kom frá Ed. Undir nál. rita Páll Pétursson með fyrirvara, Guðmundur Einarsson með fyrirvara, Þorsteinn Pálsson, Halldór Blöndal, Kjartan Jóhannsson og Svavar Gestsson.