20.06.1985
Neðri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7030 í B-deild Alþingistíðinda. (6433)
236. mál, stálvölsunarverksmiðja
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það vekur athygli mína að það eru settir hér fundir og fundum er slitið, en á dagskrá er 1. mál okkar, getraunir Öryrkjabandalags Íslands, og bíður atkvgr. Ég vil spyrja hvað oss er að vanbúnaði, herra forseti, að greiða atkv. um þetta mál og koma því til 3. umr.