20.06.1985
Efri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7053 í B-deild Alþingistíðinda. (6472)

533. mál, breytt nýting útvarpshúss

Frsm. meiri hl. (Eiður Guðnason):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um till. til þál. um breytta nýtingu útvarpshúss. Nefndin varð ekki sammála, en meiri hl. n. mælir með samþykkt till. Undir þetta meirihlutaálit skrifa hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson, Guðrún Tryggvadóttir, Valdimar Indriðason og sá er þetta mælir. Þessi meiri hl. mælir með því að till. verði samþykkt eins og hún liggur fyrir.