21.06.1985
Efri deild: 109. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7097 í B-deild Alþingistíðinda. (6529)
Starfslok efri deildar
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Þetta hafa kannske verið svolítið óvenjuleg þinglok hjá okkur vegna þess að venjan hefur verið sú að okkur hefur tekist að ljúka verkum okkar á undan hv. Nd. Það tókst að vísu ekki að þessu sinni, en ég held að þeim mun betur getum við unað við okkar verkalok.
En ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka forseta okkar góðar óskir í garð okkar þdm. Ég vil enn fremur sérstaklega þakka forseta umburðarlyndi, ánægjulegt samstarf í hvívetna og góða og röggsama fundarstjórn ævinlega. Enn fremur vil ég fyrir hönd okkar þdm. færa starfsliði Alþingis og skrifstofustjóra sérstakar þakkir fyrir vel unnin störf og góða fyrirgreiðslu þessa síðustu daga þar sem mikið mæðir á öllum. Ég ítreka góðar óskir okkar allra og þakkir til forseta og færi henni og fjölskyldu hennar okkar bestu óskir um gleðilegt og ánægjuríkt sumar. Ég vil biðja hv. dm. að staðfesta þessar mínar óskir með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.].