21.06.1985
Sameinað þing: 101. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7101 í B-deild Alþingistíðinda. (6532)

Þinglausnir

Ragnar Arnalds:

Fyrir hönd okkar alþm. vil ég þakka virðulegum forseta hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég þakka honum fyrir ágæta og réttláta fundarstjórn nú sem endranær og fyrir góða forustu um þingstörfin á þessu langlengsta þingi sem haldið hefur verið. Ég óska honum og fjölskyldu hans alls hins besta á þessu sumri. Ég vil líka nota þetta tækifæri til að þakka skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki öllu fyrir ágæt störf í vetur. Ég vil vænta þess að við megum öll hittast heil til starfa á komandi þingi. Ég vil biðja hv. alþm. að staðfesta þessi orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]