13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (693)

116. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Sveinn Jónsson:

Herra forseti. Fram kom hjá hæstv. ráðh. að fyrirhugað sé að fella niður verðjöfnunargjaldið á næstu fjórum árum, en jafnframt tryggja að verðlagning raforkunnar til heimilisnota verði sem réttlátust. Ég vil í framhaldi af fsp. Margrétar Frímannsdóttur spyrja með hvaða hætti hæstv. ráðh. hyggist tryggja afkomu Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða og bæta þeim fyrirtækjum þann tekjumissi sem þau fyrirtæki verða fyrir við niðurfellingu verðjöfnunargjaldsins.