13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (697)
117. mál, aðveitustöð hjá Prestsbakka
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Aðveitustöð þessi mun verða sameign Rafmagnsveitna ríkisins og Landsvirkjunar og hafa báðir aðilar gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir næsta vor og ljúka þeim á árinu 1985. Þannig gera Rafmagnsveitur ríkisins ráð fyrir að verja tæpum 14 millj. kr. — eða nákvæmlega 13 millj. 750 þús. kr. — á næsta ári til þessarar framkvæmdar og Landsvirkjun um 7 millj. kr. Gert er ráð fyrir að spennistöðin breyti 132 kv., sem er spennan á byggðalinunni, Suðurlinunni, niður í 19 kv., sem er dreifispennan á þessu svæði.
Eins og fram kom í svari mínu við fsp. hv. 6. þm. Suðurl. á liðnu þingi var gert ráð fyrir að spennistöð þessi risi á árinu 1984 þegar, en af tveimur ástæðum, fyrir fátæktar sakir, en þó kannske öllu fremur vegna þess að þess hafði ekki verið gætt að panta nauðsynleg t efni í tíma, þá er þessi framkvæmd ekki leyst af hendi fyrr en á næsta ári.
En ég vil upplýsa eftirfarandi í fyrsta lagi úr framkvæmdaáætlun Rafmagnsveitna ríkisins fyrir 1985 um Prestbakka: Hér er gert ráð fyrir að ný aðveitustöð rísi við Prestbakka 1985. Upphæðin — hér er verið að tala um þá upphæð sem lagt er til, þessar 13 millj. 750 þús., — er fyrir hluta Rafmagnsveitna ríkisins í stöðinni sem er í aðalatriðum 132ja og 19 kv. afls spennir ásamt öllum 19 kv. búnaði ásamt hluta jarðvinnu og húsi. Með tilkomu Prestbakkastöðvarinnar minnka töp í flutningslínum um hvorki meira né minna en 500 kw. og við það lækkar kostnaður á orkukaupum um 2.8 millj. kr.
Úr framkvæmdaáætlun Landsvirkjunar 1985 er þetta að segja:
Í samningi milli ríkisstjórnar Íslands og Landsvirkjunar um yfirtöku byggðalína o. fl. er aðveitustöð að Prestbakka á Síðu eitt þeirra mannvirkja sem eru í undirbúningi og Landsvirkjun yfirtekur að hluta. Að ósk iðnrh. hafa RARIK sett byggingu þessarar stöðvar á framkvæmdaáætlun árið 1985 og er áætlað að ljúka smíði hennar á því ári. Hlutur Landsvirkjunar í aðveitustöðinni yrði 132ja kv. rofabúnaður og hlutdeild í húsi, lóð og girðingum.
Svarið við fsp. er því að þessi framkvæmd muni fram fara og stöðin verði tekin í notkun að því er ég best veit að áliðnu sumri eða að hausti 1985.