10.10.1984
Sameinað þing: 1. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í B-deild Alþingistíðinda. (7)

Kosning forseta og skrifara

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég þakka öllum hv. þm. það traust sem þeir hafa sýnt mér með því að endurkjósa mig forseta sameinaðs Alþingis. Ég vænti þess að það megi vera það sama ágæta samstarf milli mín og hv. þm. eins og verið hefur.