19.11.1984
Sameinað þing: 22. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1069 í B-deild Alþingistíðinda. (756)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Björns Líndal deildarstjóra sem er 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík.

Kjörbréfanefnd hefur ekki neinar athugasemdir við kjörbréfið að gera og leggur til að það verði samþykki og kosning Björns Líndal tekin gild.