28.11.1984
Neðri deild: 16. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1443 í B-deild Alþingistíðinda. (921)

143. mál, álbræðsla við Straumsvík

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Þetta ákvæði í sáttargerðarsamningi hafði gildi á meðan á samningunum stóð að sjálfsögðu. Eftir að þetta er allt saman lagt hér fram hefur þetta ekkert gildi og við höfum fullkomið leyfi til að útlista samninginn að okkar vild. Og að sjálfsögðu hefur þetta ekki lagagildi.