03.12.1984
Efri deild: 22. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1515 í B-deild Alþingistíðinda. (973)

188. mál, barnabótaauki

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki svar við spurningu hv. 8. þm. Reykv. En þetta var miðað við tiltekin lágmarkslaun í upphafi. Hvernig komist var að þeirri niðurstöðu, það hef ég bara ekki handtækt hér á þessari stundu, þannig að ég get ekki svarað því hvernig menn komust að niðurstöðu um endilega þessar tölur, því miður.