12.12.1985
Neðri deild: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1486 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 100 frá 31. desember 1974, um Hitaveitu Suðurnesja, sbr. lög nr. 26/1980 og 91/1984. Frv. þetta hefur þegar hlotið afgreiðslu í hv. Ed., en er nú í seinni deild til frekari fyrirgreiðslu.

Frv. þetta felur í sér þær breytingar á lögum um Hitaveitu Suðurnesja er leiðir af samningum um sameiningu rafveitnanna á Suðurnesjum. Samningar þessir voru gerðir í framhaldi af samþykkt heimildalaga þar um, þ.e. lög nr. 91/1984 um breytingu á lögum um Hitaveitu Suðurnesja. Ákvæði frv. um innbyrðis skiptingu eignarhluta sveitarfélaganna, svo og tilhögun um stjórnarkjör og starfsskilyrði í stjórn eru samkvæmt sérstöku samkomulagi þar um á milli sveitarfélaga á Suðurnesjum. Ríkið hefur fyrir sitt leyti fallist á þá tilhögun.

Samkomulag það sem vísað er til er dags. 5. júlí 1985 og undirritað af fulltrúum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum. Í samkomulaginu er kveðið á um skiptingu eignarhluta. Eignarhluti ríkisins lækkar samkvæmt því í 20%. Þessi lækkun kemur til þar eð sveitarfélögin leggja fram skuldlausar eignir í fyrirtæki og auka þar með eign sína í fyrirtækinu. Ríkissjóður leggur engar eignir í fyrirtækið á móti og lækkar því eignarhlutur þess að sama skapi. Um þetta efni er full eining meðal eigenda.

Í tengslum við samningsgerðina undirrituðu sveitarfélögin sérstaka bókun um breytingar á lögum um félagið vegna breytts stjórnarskipulags. Í 2. tölul. bókunar segir m.a., með leyfi forseta:

„Sveitarstjórnir eru sammála um að eftirfarandi breytingar verði gerðar á lögum um Hitaveitu Suðurnesja:

1. Stjórn Hitaveitu Suðurnesja skal skipa níu fulltrúum, einum frá hverju sveitarfélagi og tveimur frá ríkissjóði.

2. Við afgreiðslu mála skal að jafnaði viðhafa hlutfallslega atkvæðagreiðslu miðað víð eignarhluta skv. 1. gr., enda komi ósk a.m.k. eins stjórnarmanns þar um og þarf þá 60% atkvæða til að málið teljist afgreitt.

3. Hitaveita Suðurnesja skal vera undanþegin álagningu hvers konar gjalda til sveitarsjóðanna.“

Iðnrh. samþykkti þetta fyrir hönd ríkisstj. með bréfi dags. 26. sept. 1985 og er frv. þetta lagt fram í samræmi við það.

Virðulegi forseti. Ég legg til að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. iðnn. að lokinni þessari umræðu.

Umr. (atkvgr.) frestað.