14.12.1985
Sameinað þing: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1599 í B-deild Alþingistíðinda. (1207)

1. mál, fjárlög 1986

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Þessi liður fjárlagafrv. hefur ekki verið tekinn til sérstakrar athugunar enn sem komið er í fjvn. Hann getur þess vegna beðið athugunar fyrir 3. umr. og ég vænti að hv. þm. Halldór Blöndal geti sætt sig við að sú athugun fari fram á milli 2. og 3. umr. Ég legg til að við höldum áfram atkvæðagreiðslunni án þess að hreyfa þennan lið nú.