14.12.1985
Efri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1602 í B-deild Alþingistíðinda. (1218)

186. mál, almannatryggingar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Hæstvirtur forseti. Heilbr.- og trn. Ed. hefur fjallað um þetta mál og leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.

Eins og hv. þingdeildarmönnum er kunnugt um er hér í raun ekki um annað að ræða en að taka af allan vafa um rétt vegna tví- og fleirburafæðinga. Um þetta þarf ekki að hafa fleiri orð. Þetta er afskaplega einfalt í sniðum og þarf ekki útskýringa við.