14.12.1985
Neðri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1633 í B-deild Alþingistíðinda. (1270)

121. mál, sala Kröfluvirkjunar

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. foreti. Bara stutt svar við fsp. hv. 5. þm. Vestf. til mín þar sem hann óskaði eftir svari við því við þessa umræðu hvort Rafmagnsveitur ríkisins hefðu haft áhuga fyrir að kaupa Kröfluvirkjun.

Nú er það svo að Rafmagnsveitur ríkisins eru alfarið á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og ríkisfyrirtæki. Kröfluvirkjun er það líka. Aftur á móti er Landsvirkjun hlutafélag. Ég hef ekki orðið var við að ríkið vilji selja sjálfu sér nokkurn skapaðan hlut.

En svar mitt er nei. Rafmagnsveitur ríkisins hafa ekki sýnt áhuga fyrir að kaupa Kröfluvirkjun.