16.12.1985
Neðri deild: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1679 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)

186. mál, almannatryggingar

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Mig grunaði svo sem að það væri eitthvað í þá veru sem hæstv. ráðh. var að tala um sem menn ættu við með þeirri grein sem hér hefur verið orðuð með svo furðulegum hætti. Ég legg þá til að menn noti það orðalag sem skilst rétt eins og ráðherra skildi það en ekki svo knúsað orðalag að enginn geti skilið það.