16.12.1985
Neðri deild: 32. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1771 í B-deild Alþingistíðinda. (1379)

2. mál, lánsfjárlög 1986

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir þessi svör. Þau eru skýr. Þessar 200 millj. kr. verða til staðar á næsta ári til viðbótar við þau almennu útlán sem sjóðurinn mun veita á árinu 1986. Þó það sé vissulega knappt miðað við þarfir húsbyggjenda er það engu að síður mikilvægt að þessi ótvíræða yfirlýsing ráðherrans skuli liggja hér fyrir.