17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1772 í B-deild Alþingistíðinda. (1387)
Um þingsköp
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Það er alveg ljóst að vísvitandi ósannindi hafa verið skráð á þingskjal af hálfu tveggja hæstv. ráðherra. Það má lesa í ritinu Íslensk fyrirtæki árin 1980, 1981, 1982 og 1983 að ákveðinn aðili hefur haft umboð fyrir þessar verksmiðjur. Það vill svo til, og ég tek fram að það er ekkert aðalatriði í málinu, að það er raunar hæstv. iðnrh. Þess vegna er það mér gersamlega óskiljanlegt að hæstv. ráðherrar fullyrði að ókunnugt hafi verið um hverjir hafi umboð fyrir þessar verksmiðjur í Frakklandi. Það sem ég vildi því fara fram á, herra torseti, er að forseti óski eftir við þessa tvo hæstv. ráðherra að þeir taki skjal sitt til baka og svari sannleikanum samkvæmt og samkvæmt bestu upplýsingum sem þeir geta fengið.
Ég vil taka undir það sem hv. þm. Eiður Guðnason sagði hér áðan. Það er allra hv. þm. hagur að við getum treyst því, ef við berum fram fsp. á hinu háa Alþingi til hæstv. ráðherra, að okkur sé sagður sannleikurinn eins og menn telja hann bestan og sæmstan. Það eru ekki hagsmunir mínir einir heldur hagsmunir allra hv. þm. Það er þessi ósk sem ég fer fram á, herra forseti, að flutt verði hæstv. ráðherrum, að ég gef þeim kost á að taka þetta þingskjal aftur og svara betur. Og ég vil taka fram að ég sætti mig fullkomlega við að hæstv. ráðherrar á þessum annatímum til jóla dragi það þar til þing kemur aftur saman. En ég vil að það komi fram að á þessu þingskjali tek ég ekki minnsta mark.