17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1395)

Um þingsköp

Kristín S. Kvaran:

Herra forseti. Úr því að allir eru að spyrja um hvað orðið hafi um svör við fsp. þeim sem þeir hafa borið upp við hæstv. ráðherra vil ég geta þess að ég bar fram þann 21. nóv. fsp. til fjmrh. um utanlandsferðir þingmanna, ráðherra og embættismanna ráðuneytanna. E.t.v. er það svo, þó að ég eigi kannske ekki að hafa uppi meiningar um það hér hvers vegna ég hef ekki fengið svarið enn þá, að þeir séu of uppteknir við utanlandsferðir.