17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1775 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það verður orðið við ósk hv. 8. landsk. þm. og forseti mun færa þetta mál í tal við viðkomandi ráðherra.

Er þess þá vænst að umræðum um þingsköp sé lokið. Með því að ekki er unnt að taka neina fsp. til umræðu vegna þess að svar er ýmist ekki fyrir hendi eða samkomulag milli viðkomandi ráðherra og fyrirspyrjanda um að fresta umræðum eru tekin út af dagskrá 1.- 5. dagskrármálið.