17.12.1985
Neðri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1819 í B-deild Alþingistíðinda. (1448)
184. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu
Frsm. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. hv. iðnn. á þskj. 283. Undir þetta nál., þar sem nefndin leggur til að frv. verði samþykkt, rita auk mín hv. þm. Páll Pétursson, Guðrún Agnarsdóttir, Svavar Gestsson, Birgir Ísl. Gunnarsson, Ingvar Gíslason og Gunnar G. Schram.
Hv. þm. Kjartan Jóhannsson flytur sérstaka brtt. Hann tók þátt í afgreiðslu nefndarinnar en flytur brtt. á sérstöku þskj. Ég tók það ráð að birta með nál. iðnn. sérálit Kjartans Jóhannssonar vegna niðurstöðu nefndar sem fjallaði um endurskoðun á verðjöfnunargjaldi af raforku. Í því felst ekki að nefndin geri það sérálit að sínu heldur þótti okkur eðlilegt að það kæmi fram á þskj. þar sem hv. þm. Kjartani Jóhannssyni gafst ekki kostur á því að birta sérálit sitt með frv. eins og t.d. sérálit Sigurðar Þórðarsonar sem sat í nefndinni ásamt hv. þm. Kjartani Jóhannssyni og öðrum þeim sem nefndir eru á bls. 6 í fskj. með frv.
Það er óþarfi, herra forseti, að hafa mörg orð um þetta frv. Þetta er árlegur gestur í sölum Alþingis. Hér er lagt til að verðjöfnunargjald á raforkusölu verði áfram 16% eins og var og er á yfirstandandi ári, en í ársbyrjun lækkaði það gjald úr 19% í 16%. Skipting teknanna, sem koma inn af þessu gjaldi, er sú sama og verið hefur þannig að Orkubú Vestfjarða fær 20% en Rafmagnsveitur ríkisins 80%. Tekjur, sem munu koma inn af þessu, eru áætlaðar 390 millj. kr. alls.
Herra forseti. Fyrir hönd iðnn. Nd. legg ég til að þetta frv. verði samþykkt og sent til 3. umræðu.