18.12.1985
Efri deild: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (1461)
170. mál, tímabundið vörugjald
Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Mér er ljúft að votta það að minni hv. þm. Stefáns Benediktssonar er með ágætum. Ég setti það að skilyrði fyrir stuðningi við þessa hæstv. ríkisstj., áður en hún var mynduð, áður en endanlega var gengið frá málefnasamningi, að 1. liður í svonefndum mildandi aðgerðum yrði veruleg lækkun neysluskatta sem féllu á brýnustu lífsnauðsynjar almennings með miklum þunga. Það hefur lítið verið að gert í þessu efni en ég geri mér vonir um að þessi ríkisstj. muni vinna á þessum sköttum áður en hún er öll.