18.12.1985
Efri deild: 37. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1840 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)
134. mál, álbræðsla við Straumsvík
Iðnrh. (Albert Guðmundsson):
Hæstv. forseti. Viðaukasamningur milli ríkisstjórnar Íslands og álbræðslunnar í Straumsvík hefur hlotið skjóta afgreiðslu í þessari hv. deild. Ég vil við þetta tækifæri og lokaafgreiðslu þessa frv. þakka hv. iðnn. deildarinnar og formanni hennar sérstaklega fyrir fyrirgreiðslu bæði skjóta og góða.