18.12.1985
Neðri deild: 38. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1880 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)

190. mál, gjaldþrotalög

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Í meðferð Ed. á frv. til l. um breyting á gjaldþrotalögum komu fram ábendingar til hv. allshn. frá réttarfarsnefnd um orðalagsbreytingar á frv., 2. og 4. gr., þar sem kveðið er skýrar að orði um ákvæði frv. Rétt þótti að verða við þeim ábendingum. Af þeim sökum þarf þetta frv. að koma aftur hér fyrir hv. Nd. Ég vænti þess að deildin sjái sér fært að afgreiða málið í því formi sem Ed. afgreiddi það.

Umr. frestað.