19.12.1985
Efri deild: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1930 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)
145. mál, stjórn fiskveiða
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég hef ekki tekið þátt í umræðu um þetta mál nú. Ég hygg að allir viti mínar skoðanir á þessu máli frá því það var rætt hér fyrir tveim árum síðan, og raunar í fyrra líka. Stundum getur líka þögn skilist jafnvel og mörg orð. Ég hef heitið því í mínum flokki að taka ekki þátt í atkvæðagreiðslu hér og nú en á sama hátt heiti ég því að berjast gegn þessu máli á hausti komanda, ef ég þá verð þingmaður, vegna þess að ég tel þetta mál ekki gott mál. Ég greiði ekki atkvæði.
Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 413).