19.12.1985
Neðri deild: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)

2. mál, lánsfjárlög 1986

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Þetta heitir kannske athugasemd við atkvæði ef ég man rétt. Hér flytur meiri hl. brtt. um að hækka töluna Lánasjóður ísl. námsmanna úr 1,1 milljarði í 1 milljarð 265 millj., ef ég man rétt. Auðvitað er sú till. skárri. En eðlilegast væri að fella þessar takmarkanir algerlega niður. Þess vegna fer ég fram á nafnakall og mun þegar þar að kemur greiða atkvæði gegn brtt. meiri hl. til að mótmæla þeirri harkalegu skerðingu á Lánasjóði ísl. námsmanna sem hér er í uppsiglingu.