19.12.1985
Neðri deild: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1967 í B-deild Alþingistíðinda. (1665)

2. mál, lánsfjárlög 1986

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Til þess að gera hv. 5. þm. Reykv. ljóst, herra forseti, hvað hér er á ferðinni, þá er hér verið að taka ákvörðun um að skerða Lánasjóð íslenskra námsmanna um 400-500 millj. kr. Þess vegna segi ég að sjálfsögðu nei.