19.12.1985
Neðri deild: 42. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í B-deild Alþingistíðinda. (1711)

194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Ég minni á að í upphafi þessa máls tók hæstv. viðskrh. því víðs fjarri að fram færi önnur rannsókn en á vegum skiptaráðanda. Hæstv. fjmrh. tók undir það. Ég lít því svo á að með frv. í núverandi mynd hafi stjórnarandstaðan með málflutningi sínum og tillöguflutningi hér á hinu háa Alþingi unnið hálfan sigur og segi því já þrátt fyrir allt.

Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 416).