20.12.1985
Efri deild: 42. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2006 í B-deild Alþingistíðinda. (1717)

2. mál, lánsfjárlög 1986

Landbrh. (Jón Helgason):

Hæstvirtur forseti. Ég hygg að það muni ekki gerast að vextirnir hækki. Staða stofnlánadeildarinnar var mjög slæm fyrir nokkrum árum, en með ráðstöfunum sem þá voru gerðar og m.a. komu fram í þessum launaskatti á bændur hefur eiginfjárstaða hennar styrkst mjög verulega þó greiðslustaðan sé erfið. Ég vonast því til þess að ekki þurfi að koma til hækkunar á vöxtum þó þessi hluti af tekjum hennar falli niður.