20.12.1985
Efri deild: 42. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2007 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)

Þingfrestun efri deild

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Þar sem þetta er síðasti fundur deildarinnar fyrir jólahlé vil ég þakka hv. þingdeildarmönnum fyrir það góða samstarf sem ríkt hefur hér í deildinni og ekki síst fyrir þolinmæði í garð forseta. Ég vil færa hv. þingdeildarmönnum og fjölskyldum þeirra bestu jóla- og nýársóskir. Sömu óskir flyt ég skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki öllu og þakka þeim gott samstarf og fyrirgreiðslu alla. Ég óska hv. þingdeildarmönnum, sem eiga um langan veg heim að fara, góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum hittast öll heil á nýju ári.